bloggmaster stína
Vinnugellurnar mínar
Eldra blog
snillingar
02.10.2006 17:06:27 / gurdi

ÚFF

Já, já góði dagurinn, ok það er mánudagur, er ennþá þunn eftir helgina, með túrverki, og er að fá aftur hálsbólgu, suma daga á maður náttúrulega ekki að fara fram úr. Ég afrekaði það að vera fyllsta gellan á MONTE CARLO um helgina, fyllri en allir rónanir til samans....fór svo heim og blandaði mér einn screwdriver því mér fannst ég ekki vera nógu full.....versta gellan. Það var samt svo fínt í þynnkunni með Homer og Mayu, horfðum á ca 25 þætti af arrested development og pöntuðum pizzu og fórum í ísrúnt og veit ekki hvaðeina.....já svo horfðum við á lucky number sleven, sem er snilldarmynd, geðveikt vel tekin og flott plott, mæli með henni....og mæli líka með Running scared, það er nú meiri ógeðismyndin, en mjög flott tekin.....

maður reynir að tjasla sér saman smátt og smátt....

Hvað vantar engum snyrtingu, halda allir að þeir séu svo sætir að þeir þurfi þess ekki, nei það er bara ég sem ekki þarf á snyrtingu að halda, önnur eins fegurð hefur ekki sést í langan tíma.....og sérstaklega í dag.... 


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 15:47:21 / gurdi

Snyrtistofa Gurdi hurdi

Jæja, mar búinn að kaupa sér vaxtæki og sonna, komin með aðstöðu heima en hér er verðlistinn.

Litun og plokkun, bæði 2000 kr

bara brúnir eða bara augnhár 1800 kr

Vax hné 2100

vax nári 1400 kr

Vax alla leið 4000 kr, endilega pantið tíma, tek allan sólarhringinn tel : 8686786

Jóna fylgir með ef þið takið allan pakkann og karlar eru velkomnir í brasilískt. :)

Svo var Flórídaferðin alger snilld, bara út að borða og sólbað og brenna soldið á sköflungunum og eyrunum, mjög gott. Það sem stóð uppúr var rússíbanagarðurinn, ush maður varð bara 10 ára aftur. Fórum í Sheikra sem er hæsti og hraðasti í heimi, geeeeeðveikur, mæli með þessari salíbunu. Ég var nú soldið hrædd fyrst svo við ákváðum að byrja á einum barna rússíbana, nei, nei var þetta svo ekki bani úr spýtum, alveg að hrynja og sá elsti í heimi. Hann fór ógeðslega hratt og var ógeð langur, ég hélt ég myndi deyja, ekki búin að borða neitt og ekki einu sinni fá mér morgunsígó. Ush....Ég allavega vaknaði við þetta, mjög skemmtileg lífsreynsla og gott hláturskast.

segi meira frá florida seinna.....


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 17:38:55 / gurdi

Flórída baby ...

Júhú ég er á leiðinni til Flórida eftir viku, og verð í 8 daga. Kærastinn hennar Karenar veit ekkert hvað hann er að fara út í, hann ætlar til Ameríku með 3 geðveikum systrum og einni vinkonu, hann bíður þessa ekki bætur.

Road trippið hjá okkur þremenningum var ekki betra en það að við endum á Sauðakróki, hehe, allt í einu sáum við bara skiltið "velkomin til Sauðakrókar" og misstum af Sigurrós, keyrðum bara í 8 tíma og vorum næstum því búin að drepa hvort annað í bílnum. Svo vorum við rekin af tjaldsvæðinu, soldid nostalgía frá Laugarvatni forðum daga en núna er maður náttúrulega að verða þrítugur svo......úff erfitt að verða eldri og eldri, konurnar á stofunni halda allar að ég sé tvítug, 10 árum yngri heldur en ég, er það gott eða slæmt, sjá þær þá ekki hrukkurnar eftir reykingarnar....USH.

Jæja já, ég get tekið litanir heim ef einhverjar vilja, er með nuddbekk og allt, tek 1900 kr fyrir litun og plokkun.


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 13:56:03 / gurdi

Frú fiðrildi

Jæja loksins er búið að opna Frú fiðrildi, allir að kíkja á mig, Laugavegur 39 við hliðina á Glamúr.

Svo er bara að frétta af mér að ég er ástfangin............af celebrity, Gilby Clarke i wants you, eruð þið ekki að grínast með kynþokann sem oozar af manninum, opin skyrta niðrá bringu, uppbretar ermar, blásið hár ég meina það gerist ekki betra, so help me god. He will be mine oh yes he will be mine.

Svo er það bara road trip um helgina, Ásbyrgi að horfa á Sigurrós, það verður þrusu stuð,

allavega kikkið á mig


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.07.2006 20:58:03 / gurdi

Gæs,gæs,gæs

Jæja þá erum við gellurnar búnar að gæsa hana Árný æskuvinkonu mína. Þetta var voða skemmtilegt og vel heppnað í alla staði. En við gellurnar skelltum okkur í magadans og súludans sem er alveg heví gaman, by the way, ég fílaði mig held ég aðeins of vel á súlunni. Ég ætla að skella mér á námskeið í ágúst hehe, mig vantar hvort sem er aukavinnu.

Árný átti náttúrulega besta atriðið, eftir magadansinn sagði konan henni að fara að skipta um föt því við vorum að fara í súludans. Arný fer inn í klefann og kemur svo fram og spyr hvort hún eigi að fara í fötin sem héngu inn í klefanum, við náttlega bara já, já. kemur svo vinkonan valhoppandi í rosalega ljótu dressi, alveg álíka ljótt og gæsadressið. Er hún kemur valhoppandi er kona nokkur sem situr í sófanum og rekur upp stór augu og segir :  "ertu til í að fara úr fötunum mínum", alveg geðveikt fúl. Við dóum úr hlátri en árný hafði bara vippað sér í næsta dress hehehehehheheh

árný þú áttir daginn elskan og við munum eftir þessu svo lengi sem við lifum,takk, takk


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 18:32:31 / gurdi

blúss...

jæja allt í blússandi rússíbana ferð, við fröken fidrildis erum bunar að fá húsnæði á Laugó mar, rosa fínn staður, eins gott að allir strauji visakortið hjá mér so help me god - ég meina það. Ég verð að eilífu fúl út í ykkur ef þið styrkið mig ekki. Allavega læt vita af kokkteilboðinu það verður svona 20 júlí cirka. Og ég er hætt að vinna júhú, ekki meira snyrtivesen hjá mér.

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 19:55:51 / gurdi

Bloggedíblogg.

Vá hvað er gaman að koma heim úr vinnuni og svo beint í Beverly Hills 90201, ég held ég sé ekki eina sem finnst þessi þættir eldast soldið illa. En þetta er svo drepfyndið og illa leikið að það hálfa væri nóg. Ég man hvað mér fannst þau öll geðveikt sæt og flott en nei, nei þau eru öll alveg afspyrnu ljót og hallærisleg, úff mar trúi ekki að ég hafi alltaf sleppt opnu húsi fyrir þennan þátt. En Melrose place er nú aðeins skárra en Beverly og Jake er nú alveg fjallmyndarlegur maður þó svo hann sé svona 1 meter á hæð, go Jake...hehe

Já ég er komin með sambýlismann sem heitir Magnús, hann er nú alltaf undir rúmi greyið en hann braggast. Við eigum samt alveg eftir að fara í hvað hann á að borga í leigu og svona og hvaða kvöld hann má þvo og svona, en við ræðum það bara er hann kemur undan rúminu....


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 18:31:07 / gurdi

Hæ hó jibbí jei...

Það var alveg blússandi stuð í Köben, 30 stiga hiti og læti, við Hrabba skemmtum okkur konunglega vel. Köben var samt mjög dýr því krónan, helvítis krónan stóð í 13 krónum og því bjórinn mjg dýr, Ush. Við lentum náttúrulega í íslensku grillpartýi og allir í blússi að hlaupa upp til sín að ná í opal skot og íslenskt brennivín, íslensk harka hehe. Svo enduðum við á Woodstock sem er grænlendingastaður í stínu, mjög súrt og svona gæjar frá svörtustu Afríku að reyna við mann og svona, bara nei nei kallinn minn i only do white men...... Alltaf gaman að koma heim til sín í danska ligeglad stemmningu, eða hvað baunirnar eru nú soldið spes, loka börunum sínum kl 2 um helgar og geðveikt erfitt að fá leigubíl heim og allt tekur endalaust langan tíma, en baunirnar mega eiga það að þeir kunna sko að bíða, ég beið t.d í 30 mín eftir einum kaffi og allir biðu bara sallarólegir og enginn sagði neitt.... Svo komum við heim í 4 gráður og storm, og stofuglugginn minn var dottinn út hehe eins og eldhúsglugginn minn gerði líka, blessuð sé minning þeirra, þannig að íbúðin mín er fokheld núna, bara rok inni hjá mér Svo var náttlega bara hefðbundið kaffibarsdjamm um helgina, ekkert spes að búa á þessari eyju, er það nokkuð....

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 11:29:54 / gurdi

on my way...

Júhú er að fara til köben áeftir, það verður glampandi sól og hiti alla helgina, allt í blússi. Ég ætla borða sushi allan tímann og drekka bjór og fara í Hm og versla af mér rassgatið. talk to you when i get back....

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.06.2006 19:19:56 / gurdi

Bara gaman!!!!!!!!!

Júhú bara gaman framundan, er að fara í ammæli hjá Hröbbutello í kvöld , reyndar að fara að vinna á morgun............en aukaatriði, svo er það Reykjavík trópík á morgun og hinn að sjá Supergrass, ladytron og ESG. Svo til Köben á miðvikudag í bissnessferð með Hröbbutellu, eða semsagt "bissnessferð".  BARA GAMAN GAMAN VERSLA VERSLA Í KÖBEN.....ALLIR AÐ SAMGLEÐJAST............

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 01:26:27 / gurdi

ÚFF

Já veersta gellan eða....skammast mín fyrir síðasta blogg, alveg bara já ég vaknaði klukkan 8 í morgun og fékk mér banana og þvoði mér um hárið og setti djúpnæringu í það, setti í eina vél....ble ble ble....nei það eru bara persónuleikalausar gellur sem blogga svona, þetta er ekki dagbók onei, bara skrifa eitthvað sniðugt og skemmtilegt. Það er bara ekki alveg prenthæft það sem ég er búin að vera bardúsa :)

Anyways ég held ég sé með athyglisbrest, ég fæ leið á öllu alveg um leið, vinnuni, vinunum, systrunum hehe nei, nei, bara kem mér aldrei í að gera neitt, tolli ekki í sömu vinnuni lengi, er geðveikt óskipulögð, vakna tíu mínútur í níu og rýk út með hárið allt út í loftið.....hef aldrei átt peningaveski, er með seðlana samankuðlaða í rassvasanum eins og pabbi minn.Taskan mín er oft líka með mjög furðulegum hlutum, í dag var ég með desilítramál, ég meina kannski þarf einhver svoleiðis, svo um daginn var ég með fjarsterýngu og tannbursta og kött. Ekki nóg með það er ég að vinna í eurocard og er að hringja eftir listum, ég get ómögulega farið eftir honum í röð heldur byrja ég efst svo fer ég neðst svo í miðjuna svo aftur efst, hvað getur maður gert í þessu, ábendingar vel þegnar:!:

En ég get alveg verið sniðug gella enda tek ég handsprengjubeygjur og fæ borgað framfyrir, og börnin koma með strútnum.....:haha:

By the way lagið með Kaiser heitir Modern way,,,,,,,geðveikt flott


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 20:19:33 / gurdi

Ég skal ekki segja...

Vá er alveg blanco í hausnum, hef voða lítið að segja. Ég held ég verði bara að drulla mér bráðum af þessu landi,er bara að vinna í þessari búð en ekkert gengur að finna húsnæði mar....USH

Ég skal bara segja frá uppáhaldslaginu mínu um þessar mundir, það heitir modern life með Kaiser chiefs....Ush kellingunni finnst þetta heavy flott.

Vá leiðinleg gella mar, en jæja ....


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 20:43:30 / gurdi

MENNING !!!

Ég er búnað vera rosa menningarleg þessa vikuna, á mánudag fórum við Hanna í Borgarleikhúsið og sáum við erum öll marlene dietrich, en það er voða, voða súr leiksýning með Ernu Ómars sem er klikkuðgella. Það sátu fjörgömul, heldri hjón við hliðina á okkur og ég hef held ég bara aldrei séð svona hneykslanlega svipi fyrr, greyin.

Svo á miðvikudaginn fórum við Mæja á COCAROSIE, sem var alveg geðveikt, samt soldið lágt sándið á þeim systrunum en öngva síður mjög flott sjó.

Svo er litla systir að útskrifast á laugardaginn, ush.......það verður fyllerí.....

So eru ég og Hrabba vinkona búnar að kaupa fyrirtækið Frú fiðrildi og erum að leita okkur að húsnæði ef einhver veit um endilega skvíla í okkur....búin að segja upp stöðu minni sem snyrtitæja og tek þá bara heim og snyrti gellur vel og vandlega....sem sagt er ég að verða bissnesskona dauðans,,,,,heheheh.

Svo eru allir bara í úglöndum um helgina, Hanna og Sindri og fleiri gott fólk, megi það fólk skemmta sér  vel en öngva síður ganga hægt  um gleðinnar dyr, ekki satt, það geri ég alltaf, segir gellan með fjólubláann olnboga sem langar að djamma í kvöld en verður að hemja sig og hafa einhvern sjálfsaga......USH


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 13:50:55 / gurdi

Og sagan heldur áfram....

Oh ég er mest nördið, fór í gær með Hönnu og systir hennar og áttum voða gott kvöld. Fórum út að borða á Tapas barinn og so á bar 101 í tvo kokkteila (very sex and the city), svo á Poolstofuna. En þar flýg ég á hausinn í tröppunum og lendi á hendinni og er tognuð, get ekki rétt úr hendinni, úff þetta bara gengur ekki lengur þetta svarta ský verður að fara af mér.

Ég hlýt að vera með mjög slæmt karma, hvað gerði ég til að verðskulda þetta, heheheh iiiiiii ógesslega bitur gella, æi ég fæ mer bara bjór í kvöld og gleymi þessu :)

Ég ætla að fara í sjálboðastarf til kína að hjálpa litlum börnum og laga þetta karma, vill einhver með...............


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 13:51:37 / gurdi

USH........

Long tæm nó blogg men, nú bæti ég úr þessu. Eins og margir vita er ég eitt mesta nörd sem til er, virka alveg ágætlega cool en NEI er það ekki……..

Síðastliðinn laugardag máluðum ég og Mæja frá okkur lífið í nýju íbúðinni hennar mæju og erum við ógesslega stoltar af okkur, rúlluðum og allt, svo um kvöldið forum við náttlega á barinn í einn drykk eins og alltaf og endar alltaf í tómu rugli. Nema hvað ég lenti í atriði sem gerist bara í bíómyndum en einhverja hluta vegna gerist alltaf eitthvað svona fyrir mig og reyndar Hönnu systir sem er álíka seinheppin eins og ég.

 

 



Allavega ég var alveg á KB að dansa frá mér lífið, svo kemur vinur hennar Mæju og heilsar mæju og björt og öllum í danshring dauðans, svo kemur gæjinn í átt að mér og ég svona geri mig tilbúna til að kyssa og knúsa hann en Nei, Nei hann fer fram hjá mér og kyssir stelpuna fyrir aftan mig heheheheheh þannig að ég bara faðma og kyssi út í loftið, hvað aulalegt er það eiginlega. Ég náttlega vonast til þess að enginn hafi séð þetta en lít á Mæju og Björt og þær liggja í gólfinu í kasti……..mesta nördið, þessi koss var ekki ætlaður mér og Mæja vinkona sá þetta gerast í slow motion. Það er allavega gott að ég get skemmt einhverjum…..:)

 

 



Svo á þriðjudaginn datt ég allhressilega í það , ég sem sagt ætlaði í einn öl á Poolstofunni en þá kom Mæja og allt fór í rugl bara skot og læti, ferlegt. Ég bauð henni ekki einu sinni að koma með , hehe. Við gleymdum alveg að við værum að fara að vinna daginn eftir…USH.

En Heiða systir hennar Hönnu Sagði mjög skemmtilegan hlut við mig eða hittó, : “Gerða, ég hélt alltaf að þú værir svo cool en ég er búin að heyra 3 sögur af þér í kvöld og mér finnst það ekkert lengur” takk Heiða sem er mörgum arum yngri en ég sem á að líta upp til mín en ég er búnaðklúðra því  J  

 

 



En það er mjög gott að hafa humor fyrir sjálfum sér því annars væri ég allavega þunglynd dauðans……spila, spila, spila J  


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3